Landsbankinn veitir þjónustu við kaup og sölu verðbréfa og ráðgjöf um val á einstökum flokkum. Lykillinn að árangri í fjárfestingum er að hafa skýr markmið, hentugar ávöxtunarleiðir og greiðan aðgang að faglegri ráðgjöf
Í netbankanum getur þú átt viðskipti með hlutabréf og sjóði hvar og hvenær sem er, á betri kjörum. Þar geturðu meðal annars keypt og selt í verðbréfasjóðum og hlutabréf í Kauphöll Íslands, fengið yfirlit yfir verðbréfaeign þína og verðbréfaviðskipti.
Verðbréfa- og lífeyrisþjónusta
Fagleg ráðgjöf er lykillinn að góðum árangri í fjárfestingum. Hjá Landsbankanum stendur þér til boða traust fjármálaráðgjöf, þér að kostnaðarlausu. Fjármálaráðgjafar veita ráðgjöf um verðbréfaviðskipti og lífeyrissparnað, aðstoða þig við að skilgreina markmið og byggja upp eignasafn. Hafðu samband við Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Landsbankans í síma 410 4040 eða verdbrefaradgjof@landsbankinn.is.
Einkabankaþjónusta Landsbankans er sérhæfð fjármálaþjónusta fyrir viðskiptavini sem vilja byggja upp öflugt eignasafn og njóta í leiðinni sérfræðiráðgjafar. Viðskiptavinir Einkabankaþjónustu njóta alhliða ráðgjafar á öllum sviðum bankaþjónustu og er þjónustan sniðin að efnamestu viðskiptavinum bankans.
Landsbankinn rekur víðtækasta útibúanet banka á Íslandi. Ráðgjafar okkar í útibúum aðstoða þig við viðskipti með sjóði og lífeyrissparnað.